daglegt líf.....

Þegar öllu er á botninn hvolft, endar allt einhvernveginn, þó margir efist um það á tímabili. (HLK)

laugardagur, september 15, 2007

punktablogg

  • er búin að fá leið á þessari bloggsíðu...
  • er mikið að spá í að henda því og byrja upp á nýtt
  • ætlaði að hafa slóðina belja.blogspot.com
  • en það er frátekið...............
  • og mér sýnist að sú sem eigi það heiti Hafdís (allavega Hafd eitthvað)
  • stórmerkileg tilviljun........................

rolla á blogspotinu er líka upptekið og sem og kusa. Ég er algjörlega uppiskroppa með hugmyndir.

Ég enda örugglega á því að flýja inn á mogga-bloggið. belja.blog.is er enn óskráð....

p.s. það er meira að segja búið að taka frá gullfiskur.blogspot.com. Það hefði átt vel við mig...

|

laugardagur, júlí 07, 2007

bloggsíða fyrir Selalækjarættarmót 2007!!!

|

föstudagur, júní 29, 2007

úfff...

er gjörsamlega að kafna úr hita hérna og langar í sund...
Veðrið á að vera svo svakalega gott um helgina að það er alveg spurning um að hætta snemma í dag og bruna heim í sveitina.

Annars fórum við fjallgönguklúbburinn á Keili síðasta þriðjudag, smá rok á leiðinni upp og ekki laust við að maður væri hræddur um að fjúka niður. Komumst þó allar upp á topp og eftir smá fíflagang uppi skautuðum við niður fjallshlíðina og yfir hraunið aftur að bílnum. við Anna ákváðum að taka "smá" minjagrip með okkur úr ferðalaginu og drösluðum þeim að bílnum.

Svo held ég að Vífilsfell (það er fjallið við Bláfjallaafleggjarann) sé næst. Ætlum að fara á miðvikudaginn, held að það sé búið að spá rigningu þá...
Dagrún systir átti svo afmæli í fyrradag og Ómar bróðir á afmæli í dag... til hamingju bæði tvö

|

miðvikudagur, júní 13, 2007

Nóg að gerast og því lítið bloggað hér. Er nú samt búin að afreka ýmislegt síðan síðast...
  • Sauðburðurinn búinn og allt fullt af hvítum lömbum
  • Bjöggi bróðir stúdent frá F.Su. og náttúrulega veisla um kvöldið
  • Er orðin ógeðslega góð í BUZZ leiknum, búin að spila 6 sinnum við Nonna og vinna 6 sinnum :) Hann kemst ekki einu sinni inn á stigatöfluna
  • Búin að klifra upp á Skálafell (á Hellisheiði). Gönguhópur Íslandsdeildar Spazzanna (sem samanstendur af Fjallagarpinum, Fjallageitinni og Fjallalambinu) stefnir á vikulegar fjallferðir í sumar. Helgafell í Mosfellssveit verður líklega í næstu viku og svo einhver fleiri fjöll.
  • og að lokum... þetta er alveg stórsniðugt! Svona skandinavískt survivor :)

|

föstudagur, maí 18, 2007

svefnlitlar nætur...


Meeeee
Originally uploaded by disa_tota.
... en allt þess virði fyrir þessi litlu kríli.

Velkomin í sveitina til að kíkja á öll litlu krílin sem fædd eru. Er í mínu árlegu fæðingarorlofi og því meira og minna í fjárhúsunum. Getið bara hringt og pantað heimsóknartíma ;)

Fleiri myndir á flickr-síðunni... smellið á myndina og þá komist þið inn á hana. Set svo fleiri myndir inn við tækifæri

|

þriðjudagur, maí 08, 2007

í fréttum er þetta helst...

Það sem ég er búin að vera að gera í apríl:
1. Vinnan: í ökkla eða eyra. Búið að vera ýmist brjálað að gera eða mjög lítið. Nú er brjálað enda ég á leiðinni í frí :s
2. Páskar... keypti tvö stór páskaegg frá Kólus og fékk eitt lítið frá mömmu. Sem betur fer þjófstörtuðum við á skírdag og átum annað stóra eggið því ég fékk magapest aðfaranótt páskadagsins og gat ekki borðað páskaeggið mitt fyrr en um kvöldið og daginn eftir.
3. veislur: fermingarveisla Helga frænda og skírnarveisla litlu Svanborgar
4. Sumarbústaðaferð saumaklúbbsins, þar sem helmingnum tókst að sólbrenna og að brenna sig á of heitu vatni vegna klúðurs við fyllingu heita pottsins :s Ótæpilega mikið drukkið, etið og bara slakað á. Katrín og Jónína sáu að mestu um eldamennsku en við hinar um uppvask. Við Hjördís rústuðum krokket-keppninni og unnum ásamt Önnu Trivial-ið. Jónína kom sterk inn með einstaklega smekklegan klæðnað í krokketinu, Anna ofvirka dreif okkur út í gönguferð að (nánast ónýtri) brú yfir Brúaráfoss og María reddaði "sárasmyrslum" á okkur brunarústirnar.
5. Skólinn: hélt þennan líka mjög svo áhugaverða *hóst*hundleiðinlega*hóst* fyrirlestur í ónæmisfræðinni. Yes... styttist í próf 12. maí og þá eru líka kosningar og eurovision.

Held að ég hafi ekki gert neitt meira í apríl eiginlega... nema á leiðinni í sumarbústaðinn ákváðum við Anna að fara í fullt af fjallgöngum í sumar!!! Minnir að við ætlum að fara í hverri viku upp eða eitthvað uppeftir einhvað fjall.
hei... skal blogga um maí á morgun eða hinn!!!

That´s all folks!!!

|

föstudagur, mars 23, 2007

Fávitar!

Gott dæmi um fávita og fávitagang sást í kastljósinu í gær
Það er gott að vera ódauðlegur...

Það ætti að dæma svona lið í samfélagsþjónustu á Grensási!

|

fimmtudagur, mars 15, 2007

vorkenn**


ekki í mínu allra besta formi þessa dagana...

Ég sem verð "aldrei" veik, er eiginlega bara næstum því veik.

Það sem byrjaði sem smá pirringur í hálsi um síðustu helgi, varð að þurrum hósta svo að röddin nánast fór og er nú orðið að kvefi.

Hóstinn er samt aðalmálið, og veldur því að ég tárast í hægra auga (ath. bara í hægri) sem svo veldur því að ég verð þrútin í kringum augað og lít út eins og ég hafi verið lamin eins og Katrín orðaði það svo skemmtilega.

Tók reyndar svo upp á því að byrja að hnerra í gær sem þýðir svo að mér er illt í nefinu í dag :s

Þessa dagana nærist ég því á hóstamixtúru, strepils, fjallagrasaópal, hálsbrjóstsykri og tei með hunangi... mmmmm


Læt svo eitthvað skemmtilegt fylgja með í lok þessa leiðindapistils. Gjörið svo vel!

|

miðvikudagur, mars 07, 2007

JÁÁÁÁÁÁÁ


Það hefði sko alls ekki verið leiðinlegt að vera þarna

|

mánudagur, febrúar 26, 2007

Dáleiddur Hammond

sama hversu oft ég sé þetta video, þá er það alltaf jafn fyndið... ef videoið virkar ekki þá er linkurinn hér


|